Karlar eru frá Mars, konur frá Venus og himingeiminn sjálfan ber á milli og því ekki nema von að kynjunum skuli ganga jafn illa og raun ber vitni að skilja hvort annað. Fæstir leggja í að fara frá öðrum hnettinum til hins, en gæti frásaga af slíku ferðalagi ekki aukið skilning okkar á kynjunum? Ég fékk nýlega disk með sumu af því besta af útvarpsþættinum
This American Life, sem er skemmtilegur útvarpsþáttur frá Chicago Public Radio. Þar var að finna viðtal við Griffin Hansburry sem fæddist stúlka og var lesbía í háskóla en ákvað að láta breyta sér í karl. Lífinu skiptir hann í fyrir og eftir, ekki fyrir og eftir kynskiptaaðgerð, heldur fyrir og eftir testósterón. Hann var settur á stóra skammta af testósteróni og breytingarnar voru miklar og snarar.
Fyrsta breytingin og sú greinilegasta var hvað kynhvötina varðar:
Fyrir testósterón: Ég var kannski í neðanjarðarlestinni og sá konu sem mér leist vel á. Ég fór að spá í hvert hún skyldi vera að fara, hvað hún væri að lesa og hvort ég gæti hitt hana og ef svo hvað ég myndi þá
segja við hana.
Eftri testósterón: Ég var í neðanjarðarlestinni og sá konu sem mér leist vel á. Hún var kannski ekki gífurlega aðlagandi en kannski var bara eitthvað eitt sem ég sá við hana. En það var nóg því nú var eins og það kæmist bara eitt að í hausnum á mér. Það var ekkert sagt og þetta var eins og að vera að horfa á grófa klámmynd og það var ekki hægt að slökkva. Núna vissi ég hvernig það var að vera unglingsstrákur.
Fyrir testósterón: Ég var cool lesbía og las upp ljóð sem ég orti um konur sem ég sá á förnum vegi.
Eftir testósterón: Ég var á gangi eftir götu og fór að horfa á rassinn á konu sem var á undan mér. Og ég glápti og glápti, en lítil rödd í hausnum á mér sagði,
ekki horfa, ekki horfa. Ég gat varla hætt en hraðaði mér þó að lokum fram úr henni.
Og þegar ég var kominn fram úr byrjaði rödd að hlóma í heilanum á mér sem sagði mér ítrekað að snúa mér við og skoða á henni brjóstin. Og það litla sem eftir var af femíníska heilanum í mér sagði:
Svínið þitt! Þú skalt ekki dirfast að snúa þér við bara til að skoða á henni brjóstin!!! Og ég barðist við sjálfan mig um stund, en snéri mér að lokum við og tók út á henni brjóstin.
Og þær voru fleiri stereotypurnar sem voru styrktar í þessari frásögn eins og t.d:
Fyrir testósterón: Ég átti auðvelt með að mynda vinasambönd við konur og átti auðvelt með að gráta.
Eftir testósterón: Ég á erfitt með eignast góða vini og get varla grátið. Ef ég finn að ég þarf að gráta loka ég mig af inni í herbergi en get yfirleitt ekki almennilega grátið, það kemur einhverskonar aumkunarverður ekki og yfirleitt koma ekki tár eins og áður.
Ja hérna hér, en þetta var ekki allt. Hann var spurður út í aðrar breytingar og sagði m.a. að þó hann gæti ekki sannað að eftirfarandi breyting væri vegna testósteróns þá hefði hann nú miklu meir áhuga á vísindum en áður. Þá kom smá þögn og síðan sagði Alex Blumberg (sá sem tók viðtalið) þetta:
Þú gerir þér grein fyrir því að með þessum orðum þínum ertu að senda okkur hundrað ár aftur í tímann! En Hansburry bætti um betur og sagði- mér finnst líka að ég skilji eðlisfræði á einhvern hátt sem ég ekki gerði áður....
En hvernig kona var hann, og hvernig karl er hann í dag? Hann virtist nú ekki hafa verið sérstaklega undir það búinn en telur sig hafa breyst úr cool lesbíu (á mótorhjóli og í leðurgalla) í fremur nördaralegan karl (lágvaxinn og mjór, og hárið farið að þynnast). Hann þurfti að læra upp á nýtt að tala við konur, en þær töldu hann margar vera kvenhatara, einhverskonar Rush Limbaugh týpu. Hann þarf líka oft að ljúga um fortíð sína, það væri t.d. erfitt fyrir hann að útskýra fyrir fólki hversvegna hann útskrifaðist frá góðum kvennaháskóla, og hann neyðist til þess að segjast hafa farið í annan skóla rétt hjá sem er eingöngum fyrir karla en er ekki jafn góður.
En viðtalið endaði allt á jákvæðu nótunum og Hansburry sagði að fyrst að hann gat gengið í gegn um þessar breytingar allar saman þá sé fátt til sem sé ómögulegt. Alex Blumberg spurði síðan hvort að hann væri ekki oft beðinn um ráðleggingar í ástarmálum og Hansburry sagði að hann og vinur hans hefðu látið sér detta í hug að stofna veffyrirtæki í þeim tilgangi og þeir gætu þá auglýst:
Áttu erfitt með að skilja hann/hana? Talaðu við okkur og fáðu ráðgjöf frá karli sem einu sinni var kona.....
Þetta líf, þetta líf.