21.4.08

Hitabylgja

Hér hefur verið heitt og notalegt í nokkra daga.
Hittinn fór í 88 á Farenheit í fyrradag. Við feðgar ákváðum af því tilefni að sofa úti á trampólíni.
Það var gaman. Fyrst hugsaði ég mér að við Ólafur myndum gera þetta einir, en Finnur frétti af þessu og vildi fá að vera með.
Við fórum út með vindsæng, kodda og svefnpoka og sváfum svo undir berum himni. Strákunum þótti þetta mjög spennandi. Finnur lagðist margsinnis og reis alltaf upp aftur. Ég spurði hann einu sinni hvað hann væri að gera og hann sagði með mikilli innlifun:
"I´m looking at the whole wide world!" Ég fór inn með Finn um kl. 2 um nóttina, en við Ólafur Stefán héldum þetta út og vöknuðum um klukkan hálf átta.

4 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

je minn, þvílíka krúttið hann Finnur. Heyri alveg í honum ;...the whole wide world" ;-)

En ég pant líka fá að gista úti á trampólíni þegar ég kem í heimsókn. Það er nú ekki eitthvað sem gerist á hverjum degi :-)

Hlakka til að hitta ykkur í vor,
Jóna Rún

5:11 e.h.  
Blogger Oddur Ólafsson sagði...

Ekkert mál!
Sophie var búin að panta eina nótt, hún fékk ekki að gista síðast, við urðum að taka eina prufunótt áður en við fórum að bjoða gestum....

5:47 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Sæl öll sömul... það er nú ekki ónýtt fyrir strákana að prufa þetta. Örugglega ekki margir sem fá tækifæri til að sofa á trampolíni undir berum himni :)
Kveðja, Berlgind á Húsavík.

2:47 e.h.  
Blogger Oddur Ólafsson sagði...

Gaman að heyra frá þér Berglind.
Þetta er kannski svipað því að sofa úti í hlöðu...

6:48 f.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim