Þrír tebollar
Ég var að ljúka við frábæra bók sem ég fékk í jólagjöf..... Three cups of tea nefnist hún og er saga Greg Mortenson. Hann er Bandaríkjamaður sem ætlaði sér að klífa K2 en varð frá að hverfa vegna þess að hann lagði í gífurlega erfiðan leiðangur til að bjarga öðrum fjallgöngumanni. Hann villtist síðan á leiðinni niður til byggða og missti af beygju á slóðanum. Það voru örlagarík mistök sem áttu eftir að breyta lífi hans svo um munaði. Hann kom í lítið pakístanskt þorp þar sem fólkið hlúði að honum. Þegar hann braggaðist fór hann að forvitnast um hagi fólksins og bað m. a. um að fá að sjá skólann. Það var sjálfsagt mál og það var farið með hann í "skólann" þar sem börnin voru að læra utandyra og skrifuðu með prikum í moldina í miklum kulda. Þessi sjón fékk svo mikið á hann að hann hét því að snúa aftur og byggja þarna skóla.
Og það gerði hann og gott betur. Frábær bók, og við lestur hennar verður manni ljóst að þetta er uppskriftin að baráttunni fyrir friði og bættum hag fátækra, ekki hvað síst kvenna.
4 Ummæli:
Hljómar áhugavert. En afhverju þrír tebollar??
Á þessum slóðum (í Pakistan og Afganistan) eru drukknir þrír tebollar til þess að ná samningum. Það getur tekið langan tíma, meira segja þegar verið er að semja um verð á timbri og öðru byggingarefni.
Þegar fyrsti bollinn er drukkinn ertu aðkomumaður. Þegar annar bollinn er drukkinn verður þú að vini, og þegar sá þriðji er drukkinn verður þú hluti af fjölskyldunni.
P.s. Mamma og pabbi biðja að heilsa!
Verð að lesa þessa bók. Var að setja nýjar myndir á heimsíðu krakkanna. Endilega kíkiði
Sæl Magga og til hamingju með dagin í dag! Verst að geta ekki verið með ykkur...
Þetta er frábær bók, mamma var eitthvað að lesa í henni þegar hún kom hingað.
Ég get reynt að koma bókinni til ykkar og þið látið hana síðan ganga á milli.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim