Sicko
Michael Moore er að klára nýju myndina sína Sicko og hún verður sýnd utan keppni á Cannes hátíðinni. Það verður áreiðanlega hrikalega gaman að sjá hana. Hann hefur jafnan hljótt um sig á meðan hann er að búa til myndirnar sínar en hann segir að Sicko sé gamanmynd um 45 milljónir manna án sjúkratrygginga í ríkasta þjóðfélagi heims.
1 Ummæli:
Enn spennandi. Þetta með sjúkratryggingarnar og Amersíkt ríkidæmi hefur verið mér lengi hugleikið, þ.e. hvernig hægt er að réttlæta slíkt fyrirkomulag.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim