Í sól og sumaryl
Það var svo heitt í Chicago í gær að þeir urðu að aflýsa maraþonhlaupinu eftir að einn hlauparinn lést vegna hitans. Við notuðum tækifærið og skelltum okkur á ströndina! Fórum seinnipartinn og vatnið er enn ekki farið að kólna þannig að þetta var fínt. Ólafur og vinur hans busluðu í vatninu og Finnur var sæll og glaður í sandinum með fötu og skóflu.
2 Ummæli:
Þessar haustblíður eru náttúrlega algjör lúxus þarna fyrir westan... Bestu kveðjur úr Álfheimunum.
Gaman að heyra frá þér, verðum í sambandi.
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim