Prófið
var erfitt eins og við var að búast. Nú er bara að naga neglurnar þangað til að ég fæ út úr því eftir mánuð. Ég náði að hitta George vin okkar og fara með honum út að borða. Hann er prófessor við University of Texas - Austin.
Borgin er mjög skemmtileg, fjölbreytt og fjörug og grösug. það rignir meira þarna en ég hélt, þetta er ekki jafn þurrt og vestur Texas og New Mexico. Þarna er mikið um alternative culture og allt sem því fylgir eins og t.d. líflegt tónlistarlíf. Þarna sá maður hús sem eru í svipuðum stíl og nýju húsin heima, allt kassalagað og meira að segja stundum klætt með bárujárni. Ég sem var farinn að halda að þessi stíll væri ekki til í Norður Ameríku, væri nánast bannaður. Ég hélt að það stæði einhvers staðar í stjórnarskránni að öll ný hús ættu að vera eins.
Flugvöllurinn var sá skemmtilegasti sem ég hef farið um. Hann er nýr og ekki yfirþyrmandi stór. Þar eru þeir trúir mottóinu sín (keep Austin weird) og leyfa engar stórar keðjur, þannig að þar var hvorki Hudson News, Mc Donalds eða Starbucks, bara skemmtilegir staðir sem upprunnir eru í Austin.
Þá er maður sem sagt búinn að heimsækja Austin. Aðrar borgir sem maður hefur heyrt að séu með svipuðum blæ og þykja mjög spennandi eru Boulder Colorado, og Asheville North Carolina.

3 Ummæli:
Nú skil ég Wes Anderson og Wilson bræður, þá Owen og Luke, miklu betur. Þeir hafa alltaf virkað svo á skjön við marga aðra í kvikmyndaheiminum. En Austin hljómar sem klassa borg sem gaman væri að heimsækja. Og til hamingju með prófið
þetta var ég hér að ofan. bið að heilsa liðinu
Gaman að heyra frá þér Jóna. Þú kemur við hérna á leiðinni til Austin....
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim