WT?
Jæja.
Trampólínið hefur vakið mikla lukku eins og ég greindi hér frá en þó hafa því fylgt nokkrar "aukaverkanir". Þannig höfum við komist að því að við höfum færst skörinni neðar í þjóðfélagsstiganum hér eftir að við keyptum það. Þetta þykir greininlega dálítið hættulegt leikfang og þykir ekki sæmandi fólki í okkar stöðu að eiga svona. Ég komst að þessu þegar ég var að tala um það við forledra vina Ólafs að bjóða krökkunum heim að hoppa á trampólíninu. Ein mamman tók alveg andköf yfir þessu og var greinilega mjög lítið spennt fyrir að komað með barnið sitt í heimsókn. Þetta var einkar fyndið í ljósi þess að við stóðum öll og vorum að tala saman fyrir utan salinn þar sem að börnin okkar voru í FIMLEIKATÍMA!
Meredith fékk síðan eins viðbrögð þegar hún var í mat á spítalanum. Pógramstjórinn hennar var næstum búin að snúa sig úr hálsliðnum af vandlætingu þegar Meredith greindi henni frá þessu dótavali okkar handa drengjunum.
En fyrst maður er á annað borð farinn að versla dót framleitt í Kína sem er selt í Walmart þá er kannski bara eins gott að nota tækifærið og gangast við sínum innra manni. Ég er sem sagt svona redneck eða white trash náungi. Nú þarf ég bara að selja rafmagnsknúna hrísgrjónabrennarann og fá mér almennilega "Truck" (Ford eða Dodge Ram pickup, ekki double cab), selja húsið og kaupa "Double wide" hjólhýsi. Síðan er bara að setja kántrí á fóninn, setja ameríska fánann fyrir utan dyrnar og sjást aldrei heimavið öðruvísi en með Miller eða Bud í annari hendinni og hamar eða byssu í hinni. Ýstran verður eftir þetta kölluð bjórvömb og henni fylgja viðeigandi "Love handles". Þarf síðan að fara aftur í Walmart og kaupa mér "plaid" skyrtu og Wrangler gallabuxur sem n.b. eru framleiddar í Kína. Spurning hvernig merki á að vera á derhúfunni -kannski Nascar eða Indie 500?
Annars fylgdu svo margar varúðarreglur með trampólíninu að ég beið bara eftir að lesa einhversstaðar: NO JUMPING!

4 Ummæli:
Já þeir eru margit skrýtnir Kanarnir!
Ég mæli með Nascar merki á derhúfuna, það er klassískt Red Neck, og Nascar jakka í stíl, svona með þéttri teygju í mittið og öðruvísi litum ermum.... Og muna að raka sig ekki eða klippa!
Gísli
Hljómar vel. Ég treysti því að haldir uppi merki okkar red neck gæja á Akureyri...
Átti að vera: Ég treysti því að ÞÚ haldir uppi merki okkar á Akureyri...
Ég verð náttúrulega glæsilegur í svona þröngum jakka og órakaður..
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim