22.9.06

NEI!

Það hafðist. Mér tókst að kenna Finni að segja nei. Hann er farinn að tala mjög mikið og komst að því að best væri að læra með því að herma eftir sem talað er til hans eða sagt er í kring um hann. Hann talar því gjarnan um sjálfan sig í þriðju persónu. Dæmi um samtöl okkar á milli:
Vill Finnur fá að Borða?
Finnur fá að borða
Viltu fara á róló?
Fara róló!

Hann sem sagt endurtekur ef hann er sammála en sagði gjarnan uhm! og gretti sig ef hann vildi segja nei. Mér þótti þetta ómögulegt og kenndi honum að segja nei og hann er farinn að nota það óspart.
Vill finnur fara í skólann?
Nei. Ekki fara í skólann.
Villtu fara út í bíl og fara í skólann?
Nei!
Finnur fara í bíl og fara að versla. (Það er greinilega mjög gaman að gera það..)
Finnur taka lýsi.
Uhm! (grettir sig) Nei!
En ég fæ hann samt til að taka lýsi ef það fylgir eitthvað gott á eftir eins og epladjús.
En það er semsagt mikilvægt að kunna að segja nei.
Kveðjur.

4 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Hæ sæta fjölskylda. Gaman að skoða bloggið ykkar. Við munum vera dugleg að fylgast með. Við reynum að vera dugleg að uppfæra síðuna hennar Kristínu Dóru. Vonandi sjáumst við sem fyrst.

Saknaðar kveðjur; Magga, Sigfús og Kristín Dóra.

5:41 e.h.  
Blogger Oddur Ólafsson sagði...

Takk fyrir að kíkja í heimsókn! Verið endilega dugleg að skoða þetta og koma með athugasemdir.

9:01 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Komid thid sæl elsku fjølskylda. Eg sit her a bokasafninu i Tromsø. Thad rignir, var adeins gratt i fjallatoppum i morgun, alveg eins og eg væri kominn heim til Islands. I gær for eg ut ad borda og hitti mjøg skemmtilega heimamenn. Their eru opnir og hressir herna.
Hafid thad gott,

Ykkar einlægur,

Pabbi

8:30 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Hæ aftur,
Thad rann ut timminn a tølvunni her i Tromsø. Reyni aftur. Eg ætla bara ad thakka ykkur fyrir skemmtilega sidu. Seinna tharf eg ad læra ad logga mig inn a eigin nafni. Eg kann thetta ekki enntha. Namskeidid byrjar a morgun. Eg er ad lesa thykka bok um throskaferli barna til ad undirbua mig. Heyrdi i mømmu adan. Allt gott ad fretta ad heiman.

Bless, bless

Pabbi

8:35 f.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim